Ólafur nam sjúkraþjálfun við Univeristy College Syddanmark í Esbjerg í Danmörku, þaðan sem hann útskrifaðist 2014.
Síðan hann útskrifaðist hefur hann starfað á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja auk þess að starfa sjálfstætt. Á þessum tíma hefur hann sinnt ýmsum verkefnum og misjöfnum vandamálum skjólstæðinga sinna.
Þar má nefna:
- Almenn sjúkraþjálfun, t.d. stoðkerfisvandamál, álagsmeiðsli, öldrun og aldurstengd vandamál o.m.fl.
- Endurhæfing eftir alvarleg veikindi
- Endurhæfing eftir slys
- Endurhæfing taugasjúklinga
- Endurhæfing eftir liðskipti í mjöðmum, hnjám og öxlum
- Endurhæfing eftir beinbrot
- Fyrsta stigs hjartaendurhæfing
- Íþróttasjúkraþjálfun í samstarfi við M.fl. karla hjá körfuknattleiksdeild Njarðvíkur
- Haft umsjón með hreyfiseðlum á heilsugæslu
- Þjálfun fólks með ýmsa sjúkdóma, m.a. sykursýki, krabbamein, hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma o.fl.
- Auk ýmissa annarra verkefna tengdum sjúkraþjálfun, lýðheilsu og þjálfun
Ólafur lærði áður íþróttafræði og útskrifaðist frá Kennaraháskóla íslands árið 2008.
Hann starfaði sem einkaþjálfari í 4 ár og hefur þjálfað ýmsar íþróttir á grunnstigum auk styrktarþjálfun hjá efri stigum íþróttaliða.